<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, maí 26, 2004

Jæja krúttin mín 

Hvernig væri nú að einhver vaskur ás tæki sig til og ritaði niður ferðasögur frá ferðinni fræknu til Vestmannaeyja?

Ég sjálf hef kannski ekki frá svo miklu að segja, því ég var veik allan tíman.

Sá sem þetta gerir gæti þá póstað henni hérna, ásamt því að senda hana inn á huga, og jafnvel scout.is...

kommon krakkar...

mánudagur, maí 10, 2004

Óvissuferð um helgina 

Jæja goð og gyðjur! Þá er komið að því, óvissuferð hálfdrættingasveitarinnar HDS Ása er á næsta leiti og allir orðnir gífurlega spenntir.
Til að allir verði viðbúnir öllu í þessari massaferð hentum við saman örlitlum útbúnaðarlista. Listanum skal fylgja nákvæmlega!


Mæting klukkan 17:45

Helgin 14.-16. Maí


Bestu kveðjur, Inga
(8966120) og Vigga (8241739)!

fimmtudagur, mars 11, 2004

www.Svanirnir.tk 


Já, Svanir eru loksins komnir með heimasíðu, en þetta er nú bara svona bráðabirgðaheimasíða þangað til að við fáum nýja heimasíðu, sem verður rosaleg! yeah...

En endilega kíkið á hana...

sunnudagur, mars 07, 2004

Gengið á plankann 

Nú er kominn tími til að taka upp kutann, leppinn, pakka upp páfagauknum og pússa tréfótinn, því að það fer að styttast í félagsútilegu Svana!

Ég get ekki sagt annað en ég bíði spennt eftir þvi að leggja af stað í þessa æsispennandi sjóferð ásamt öllum hinum 60 sjóræningjum félagsins. Þetta verður rosalega gaman, enda Gufuskálar stórskemmtilegur staður sem bíður upp á milljónir möguleika.

En hvernig er það annars? Ætla ekki allir að fara?

bestu kveðjur,

Inga Gulltönn Straumland

Ædoll -skátaleit 

Skátaædollið var haldið síðasta fimmtudag og herma fréttir að þar hafi verið fádæma góð stemmning. Það var hún Vigga okkar sem sigraði enda hefur hún sannkallan gullbarka, þaðan sem þíðir hjómarnir streyma. Ég er líka mjög stolt af eina keppanda Ása, honum Magga mínum. Mér heyrist á öllu að Páfuglalagið hafi verið stórgott.

Jæja þannig að Vigga fer í stóru keppnina, og nú er hún einmitt í óvissuferð með öllum hinum sigurvegurunum.
Ég var stödd á keppninni hjá Víflum og þar var hvorki meira né minna en 12 ára stelpa sem vann og söng líka bara svona unaðslega vel!
Til hamingju Vigga og Ylfa Marín (keppandi Vífils).
Við stöndum með ykkur!