fimmtudagur, mars 11, 2004
www.Svanirnir.tk
Já, Svanir eru loksins komnir með heimasíðu, en þetta er nú bara svona bráðabirgðaheimasíða þangað til að við fáum nýja heimasíðu, sem verður rosaleg! yeah...
En endilega kíkið á hana...
sunnudagur, mars 07, 2004
Gengið á plankann
Ég get ekki sagt annað en ég bíði spennt eftir þvi að leggja af stað í þessa æsispennandi sjóferð ásamt öllum hinum 60 sjóræningjum félagsins. Þetta verður rosalega gaman, enda Gufuskálar stórskemmtilegur staður sem bíður upp á milljónir möguleika.
En hvernig er það annars? Ætla ekki allir að fara?
bestu kveðjur,
Inga Gulltönn Straumland
Ædoll -skátaleit
Skátaædollið var haldið síðasta fimmtudag og herma fréttir að þar hafi verið fádæma góð stemmning. Það var hún Vigga okkar sem sigraði enda hefur hún sannkallan gullbarka, þaðan sem þíðir hjómarnir streyma. Ég er líka mjög stolt af eina keppanda Ása, honum Magga mínum. Mér heyrist á öllu að Páfuglalagið hafi verið stórgott.
Jæja þannig að Vigga fer í stóru keppnina, og nú er hún einmitt í óvissuferð með öllum hinum sigurvegurunum.
Ég var stödd á keppninni hjá Víflum og þar var hvorki meira né minna en 12 ára stelpa sem vann og söng líka bara svona unaðslega vel!
Til hamingju Vigga og Ylfa Marín (keppandi Vífils).
Við stöndum með ykkur!